Heimasíða Black & Tan Crewsins
Atlas Rottweiler, Jagó Dobermann, Karma Dobermann, Kiara, Tjica & Zircon Miniature Pinscher


Gestabók

13.3.2012 kl. 21:58

Hi what a great homepage you have with wonderful dogs. Jago is really looking great. I am so proud of him and i am really thankfull that you have given him such a great home. Kind regards from us in Sweden.
Ian

Ian

Www.spicegardens.se

6.3.2012 kl. 19:56

:)

Einstaklega fallegir hundar í Black&tan crewinu. :)

Runólfur Óttar Kristjánsson

enginn..

7.2.2012 kl. 9:34

Hundakveðjur

Sæl Berglind,

yndislegar myndir hjá þér. Biðjum að heilsa Benna og vonum að hann sé að haga sér vel.


Guðrún Sólonsdóttir

4.4.2011 kl. 8:29

hæhæ

Sæl Berglind. Æðislegir hundarnir þínir, hlakka til að koma með í göngu í sumar með mína hunda.

Það verður gaman hjá Tító þegar hann kemur í pössun þegar tíkurnar ná hápunkti lóðeríssins, efa það að hann vilji koma heim eftir allt fjörið með hinum mini pinnunum :D

Sólveig Gylfadóttir

http://hundar.123.is/

2.4.2011 kl. 2:31

Hæhæ rosalega flottar myndirnar hjá þér skvísa ekkert smá stillt erum svo stolt af henni

Þóra og Davíð

19.9.2009 kl. 23:20

Vá...var að skoða myndir teknar 10.02.2009 .....það er einsog þetta hafi verið í gær.Snjórinn og lætin þarna og nú er þetta að allt að fara að byrja aftur.En hlakka til að byrja göngurnar aftur með þér,bíð spenntur.

Kveðja. Hafsteinn og Neró.

Hafsteinn Sveinsson

3.7.2009 kl. 13:42

Sakna hundanna minna!

Sit í sól og sumaryl í elsku bestu Genf, en án Ísanna minna - og sakna þeirra alveg svakalega. Allir vinir og kunningjar, meira að segja fyrrverandi nágrannar spyrja eftir þeim og fá engan veginn skilið hvers ég tók þær ekki með - sérstaklega fjórfættu vinirnir okkar hérna ;-)
Það er samt yndislegt hérna og ég nýt þess út í ystu æsar að vera aftur á heimaslóðum og hitta alla góðu vinina, en það er ekki alveg fullkomnað vegna þess að þær eru ekki með mér...
Þakka þér svo þúsundfalt að hugsa um þær fyrir mig - bara varð að kíkja aðeins á yndislegu myndirnar þínar og hugsa til þeirra smá stund, sjáumst fljótlega og ég reikna með að þær verði heima að taka á móti mér þegar ég kem á morgun.

Bestu kveðjur, Hafrún

Hafrún Stefánsdóttir

26.5.2009 kl. 13:38

Þeir eru svo fallegir hundarnir okkar

Hæ þið, það er svo gaman að sjá myndirnar af ykkur og ég fæ verk fyrir brjóstið þegar ég sé hann Neró minn ég sakna hans en veit að hann er í góðum höndum hjá þér.. ÞÚ ERT BEST Berglind mín kv Dögg

Dögg Kristjánsdóttir

Þeir eru svo sætir

29.4.2009 kl. 15:32

Sæl Berglind, Skemtileg síða og gaman að skoða allar þessar myndir, Verðum i bandi :)

Anton Kristinn

www.Antonk.net

16.3.2009 kl. 13:15

:)

Hæhæ, bara að kvitta fyrir innlitinu ;) Alltaf flottustu hundarnir, Atlast stendur ávalt fyrir sýnu og mun alltaf gera:)

María, kíta og flicka

12.2.2009 kl. 1:30

Flottur banner og fallegir hundar sem þú átt :)

Auður Eyberg

12.2.2009 kl. 1:29

Hæ rakst á þessa síðu og bara kvitta fyrir mig :)

Kveðja

Auður Eyberg

Auður Eyberg

http://www.123.is/eybergshundar

9.2.2009 kl. 14:25

hæ Skvís

vildi bara láta vita að ég er komin með nýja síðu :) rosalega flottur bannerin hjá þér :)

Dagný

http://123.is/augnaryndis

16.12.2008 kl. 12:06

14.12.2008 kl. 19:59

:)

Atlas er alltaf jafn fallegur.

Sunny

22.11.2008 kl. 23:37

Svo flottar myndir

Vá hvað það er gaman að skoða myndaalbúmin hjá þér. Æðislegar myndir af æðislegum hundum. Á aldrei eftir að skilja hvernig þér tekst að taka svona flottar hópmyndir þar sem allir sitja kyrrir ....;)

Þóra

http://malamutehundar.blogcentral.is/

10.11.2008 kl. 22:31

Myndir

hæhæ ég kvitta alltof sjaldan hérna en kíki við nær daglega haha
bíð enn eftir myndum úr gögunni híhí
kv. Stella

Stella

www.briard.is

20.10.2008 kl. 13:11

Takk:)

Vá vá og aftur vá:) Æðislegar myndir! takk fyrir mig!
kv
Odda og co

Oddfríður Helgadóttir

5.10.2008 kl. 13:51

Takk fyrir heimsóknina

Takk fyrir síðast, frábærar myndir hjá þér. Kveðja af Kjalarnesi. Elín og Þórður

Þórður Bogason

www.123.is/mjolnir

5.10.2008 kl. 13:34

Til lukku :)

Hæ hæ og takk fyrir síðast :)
Innilega til hamingju með hann Atlas kallinn hann er náttúrulega bara flottasti strákurinn :o)

Kveðja héðan frá Hornafirði
Birna Kristín, Ingi Jón og litlu voffarnir

Birna Kristín og Ingi Jón

http://www.123.is/vestfjardar

29.9.2008 kl. 12:28

Til hamingju

elsku besti bróðir með árangurinn um helgina. Gaman að sjá þig aftur í hringum.

Kaya systir

www.kaya.dyraland.is

27.9.2008 kl. 18:53

Hamingjuóskir

Elsku Atlas!

Til hamingju með meistarastigið í dag - það er yndislegt að sjá hvað þú hefur náð þér vel!

Ísurnar hlakka til að komast aftur í leikhópinn sinn og biðja fyrir bestu kveðjur til Jagó og Kiöru :-)

Hafrún - Folda og Dóra

23.9.2008 kl. 18:03

Takk Takk Takk

Vá hvað þú tekur flottar myndir:) Þær eru æði! Takk aftur fyrir komuna:)

Bkv
Odda

Odda

7.9.2008 kl. 19:56

Takk og aftur takk!

Þakka þér elskulegust aðstoðina í gær með Dóru litlu lóðerísdrós :-)
Þetta er annars frábær tímasetning, nú verður hún búin á haustsýningunni!

Bestu kveðjur, Hafr

Hafrún Stefánsdóttir

1.8.2008 kl. 0:25

LOPPUFAR

hæ hæ eða voff voff :) bara að kíkja fyrst að ég mundi slóðina ..............

Maríanna á móti

11.7.2008 kl. 19:37

Frábærar myndir

vorum að skoða myndirnar af Aski og hans vinum. Alveg frábærar myndir og rosalega gaman að sjá Ask í þessum skemmtilega hóp. Askur þakkar kærlega fyrir sig og vonandi sjáumst við aftur fljótlega. p.s. fyndið hvað Askur og Atlas eru mikilir vinri. Kveðja frá öllum í Dalhúsum

Askur og fjölskylda

25.6.2008 kl. 18:35

Kvedja fra Spani

Aedislegar myndir og frabaert ad sja ad Garpur hefur thad gott og greinilega skemmtir ser vel.

Silla og co

9.5.2008 kl. 21:45

Hæhæ

Alltaf jafn skemmtilegt að kíkja á bloggið hja þer. Vona að allt gegnur vel hjá Atlasi. Hvernig gengur meðferðirnar hans ?

Lena

tattoobitch.blogcentral.is

26.4.2008 kl. 22:54

Hellú

alltaf jafn gaman að skoða myndirnar hjá þér skvís. Enda black og tan safnið ekkert smá flott :)

Kveðja úr Hafnó
Karen og dofrarnir

Karen Gísladóttir

www.aegishjalms.com

20.4.2008 kl. 23:35

Hæ Hæ langaði bara að þakka fyrir virkilega skemmtilegann laugardag, og svona kanski ýta á eftir myndionum sem þú tókst. Sérstaklega þessari af Freyju þú veist hehe.... (skelli enn uppúr við tilhugsunina)
Heyrumst vonandi fljótlega
KV Kristín
Ps Sílo sendir urr slef og bofs á Atlasinn og hina hundana (myndi bara naga kettina ef hann kæmist í þá)

Kristín og Sílo

14.4.2008 kl. 22:44

hæ hæ

skvís takk æðislega fyrir okkur það var rosalega gaman niðrí seltjörn :) en á ekki að fara að setja myndirnar inn :)

Kær kveðja Dagný

http://123.is/casanova

10.4.2008 kl. 15:04

Blessuð, var að skoða myndirnar frá því þeir voru 5 hjá þér - dugnaður að vera með þennan fjölda og ná að stilla þeim svona fínt upp :)

Verðum svo að fara aftur með Lúkas og Jagó í göngutúr....vonandi gengur það betur í annað sinn!

kv,
Kristín María

Kristín María

www.123.is/lukas

9.4.2008 kl. 16:49

Hæ hæ

Flottar myndir hjá þér berlind og flott síða :)

Kv Svenni og brúnó úr sveitini

Sveinn H Friðriksson

30.3.2008 kl. 10:49

Hæhæ

ég ætlaði bara að láta þig vita að ég er núna komin með blogg sem er tattoobitch.bloggar.is :) ætla reyna halda þessu bloggi uppi sjáum til hva gerist ;) e´n ég ætla fá að henda þér inn á listann á blogginu ok ? :D heyrumst

Lena

tattoobitch.blogcentral.is

27.3.2008 kl. 21:47

hæ hæ

blessuð, varð bara að kíkja við. Skemmtileg síða og frábærar myndir, þú ert ekkert smá dugleg....maður bara fölnar í samanburðinum :) Vonandi var fjör í göngutúr í dag - við komum klárlega með næst!

kveðja,
Kristín María & Lúkas

Kristín María

www.123.is/lukas

17.3.2008 kl. 23:00

Virkilega flottar myndir

Virkilega skemmtilegar myndir hjá þér og gaman að skoða. (þú ættir að leggja dýraljósmyndun fyrir þig, enda næruðu mun betri myndum af ferfætlingum en margur annar :)
Sendum einnig Atlasi knús og baráttukveðjur.

KV Kristín.

Kristín og Sílo ;)

gismo.dyraland.is

11.3.2008 kl. 23:27

Flottar Myndirnar

hæhæ flottar myndirnar af Imbir og Úlf vonandi tekuru fleyri um helgina á stórhundadögum :D gangi ykkur vel á fimmtudaginn or break a leg

Stella

www.briard.is

8.3.2008 kl. 21:37

Hann er ekki að skána, fáum skorið úr hvað þetta er í vikunni hjá dýrlækni. Allherjar rannsókn.

Berglind & Atlas

7.3.2008 kl. 10:37

hæhæ skvís hvernig er Atlasinn?
Eitthvað að skána?
Hlakka til að sjá nýtt blogg frá þér ;-)
Kv.Stella og Imbir

Stella

www.briard.is

23.1.2008 kl. 19:33

Halló

Hæ hæ flott síða ;) kveðja úr sveitinni ;)
Sóley, Brúnó, Stormur og auðvita pjakkur og Pheobe biðja að heilsa

Helga valgerður Friðriksdóttir

21.1.2008 kl. 11:35

Æðislegar myndirnar af þeim í snjónum! :) Er búin að stela nokkrum myndum ;) Sakna Kiöru hrúgu en ég sé að hún gæti ekki verið á betri stað :) Takk æðislega :* Kysstu hana frá mér og auðitað einn stórann á Atlas líka ;)
Kveðja Andrea úr eyjum

Andrea Gísla

15.1.2008 kl. 17:59

Sæl

Hæhæ. Vá hvað ég sakna Kiöru en það er æðislegt að sjá hvað hún dafnar vel hjá ykkur. Æðislegar jólamyndirnar af henni og Atlasi :) Bestu kveðjur til ykkar.

Esther

Esther

www.barnaland.is/barn/35389

25.12.2007 kl. 22:50

Til hamingju...

með nýja fjölskyldumeðliminn. Við Kaya getum ekki beðið eftir að kíkja í heimsókn til ykkar í nýja einbýlishúsið :)

Þórdís og Kaya

www.kaya.dyraland.is

15.11.2007 kl. 13:58

Takk allir fyrir góðar kveðjur :)

Er á fullu að uppfæra síðuna og bæta við tenglum á heimasíður hjá öðrum hundum.

Berglind & Atlas

15.11.2007 kl. 9:01

Flott síða

hæhæ skemmtileg síða hjá þér, gaman að sjá allar þessar myndir.
Ég var alveg búin að gleyma því að ég hafi verið með blog.central síðu :D
orðið aðeins breytt í dag hehe..
takk fyrir mig og heyrumst ;)

Stella

www.briard.is

10.10.2007 kl. 9:57

Flott síða.
Atlas er frábær fyrirsæta :)

Margrét og Myrra

19.8.2007 kl. 14:07

hæhæ

takk fyrir góðan dag og myndirnar eru æðislegar takk fyrir okkur :)

Dagný og Akíma

www.123.is/greatdane

10.7.2007 kl. 14:37

Til hamingju með daginn...

elsku bestasti bróðir og vinur. Hittumst vonandi fljótlega aftur.

Kaya afmælisstelpa og mamma

www.kaya.dyraland.is

3.7.2007 kl. 15:27

þú verður nú að vera duglegri að blogga en þetta ;)

elska að skoða myndir af Atlas hann er bara sætastur

Sigga og Buffy (og allt hitt liðið)

28.5.2007 kl. 19:22

Hæ skvís :p

Hæhæ.. rakst á síðuna þína, bara flott.. Mig vantar eimmitt svona síðu fyrir myndir.. En allavegana, til luku með ammælið um daginn, síja.. =)

Svava og Skrímslið

17.5.2007 kl. 16:39

hi

hæ skvís til hamingju með nýju síðuna þína;)

Þóra Kristín

www.123.is/thorastina

Flettingar í dag: 0
Gestir í dag: 0
Flettingar í gær: 18
Gestir í gær: 5
Samtals flettingar: 52518
Samtals gestir: 21482
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 00:19:27


clockhere

Um Mig

Nafn:

Berglind Kolbeinsdóttir

MSN netfang:

scarka@hotmail.com

Afmælisdagur:

25 maí 1978

Staðsetning:

Grindavík

Önnur vefsíða:

www.Facebook.com

Tenglar